Þegar ég horfi til baka yfir þetta að mörgu leyti brösótta líf mitt er ég ekki frá því að konur hafi bjargað lífi mínu, allt saman góðar konur sem hafa orðið á vegi mínum - og komið mér til manns.
Í þessa veru talar Jón Gnarr í einstaklega manneskjulegu viðtali í Mannamáli kvöldsins þar sem hann rifjar upp erfiða æsku sína, margbrotna af einelti og misheppnaðri skólagöngu uns hann var sendur af mölinni út á land, að Núpi í Dýrafirði, þar sem hann fann að lokum hvað hann gat í lífinu, en fram að því var hann brotin sál á Hlemmi, anarkískur pönkari og reiður inni í sér.
Það er dásamlegt að heyra og sjá hann rifja upp borgarstjóraárin sín sem hann segir að hafi hvorki verið þægileg innivinna né vel borgaða - og honum hafi í reynd fallist hendur þegar hann áttaði sig á því út í hvers konar verkefnavinnu hann var kominn, ásamt því líka að vera andlit borgarinnar og helsti embættismaður, inni í þessu líka stóra apparati við Tjörnina.
Og svo er hann að fara að leika að nýju, vitaskuld í Áramótaskaupinu og nú síðast í nýrri VR-auglýsingu þar sem Georg Bjarnfreðarson dúkkaði upp að nýju, en Kvöldvaka er að hefjast með honum í Borgarleikhúsinu hinum megin áramótanna og þar muni smásögur hans birtast alþjóð á sviði, sögur af fólki sem hann hafi hitt á lífsleiðinni - og hann hlakki sko til; hann sé hópsál og njóti sín hvergi betur en þegar sköpunarkraftur margra komi saman í einum og sama punktinum.
Mannamál byrjar klukkan 20:00 í kvöld.