\"Hvað er þetta með líkamshár kvenna? Af hverju eru þau svona mikið mál? Sjálfri finnst mér minn maður með hár út um allt alveg æðislegur. Og vil bara meira af honum á allann hátt. Hann má stækka, breikka og verða loðnari og mér finnst það bara frábært.\"
Þetta skrifar sjónvarpskonan Sirrý í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is og skilur ekkert í því af hverju konur efast jafn mikið um útlit sitt, ólíkt körlum, svo sem raun ber vitni: \"Sjálfri finnst mér ljótt að sjá hár undir höndum kvenna og loðna fótleggi. Og ,,bikiniröndina“ þarf líka að passa. En hvers vegna er þetta svona,\" spyr Sirrý og svarar því til að sennilega sé svarið að finna djúpt í menningu okkar og hugmyndum um hvað er kynferðislega aðlaðandi.
\"Ég hitti mjög skemmtilega og áhugaverða hæfileikakonu í sundi um daginn,\" skrifar Sirrý áfram: \"Hún tjáði mér að henni væri skapi næst að hætta að raka af sér hár á fótleggum og önnur líkamshár,\" og Sirrý segir að þessi vinkona hafi þarna hlustað á alsæla og kafloðna karla með bumburnar út í loftið sem töldu sig vita allt best og \"efast ekkert um eigið ágæti\" eins og konan hafði á orði.
Hún segir að þær stöllur hafi velt því fyrir sér af hverju konur væru alltaf að efast um eigið ágæti; aldrei væru þær nógu flottar og klárar og ýmist of eða van. Og vinkonan hafi sumsé sagt: \"Mig langar bara að hætta að taka þátt í þessu og hætta að raka af mér líkamshárin. Láta þetta bara vaxa, taka mitt pláss og láta allt gossa, eins og kallarnir í pottinum.“
Sirrý segir að þetta loðna spjall hennar og vinkonunnar í búningsklefanum hafi leitt til umræðu um stöðu kynjanna almennt, svo sem í fjölmiðlum, en með ólíkindum væri að aðeins 20% þeirra sem tjáðu sig í útvarpi og sjónvarpi væru konur á móts við 80% karla (nema raunar á Hringbraut þar sem hlutföllin eru jöfn).
Einu sinni hefðu hlutföllin verið 30/70, körlum í vil - og ástandið hefði sumsé versnað. Niðurstaða Sirrýjar og vinkonunnar er því þessi: \"Loðnar eða rakaðar þá eigum við að taka okkar pláss í pottinum, hafa jafn hátt og karlar og vera bara lukkulegar með okkur.\"