Konur 20% viðmælenda í fréttum

Fjallað er um eða rætt við konur í um fjórðungi frétta í heimspressunni. Hér á landi er hlutfall kvenna undir þessu eða um 20%. Annars staðar á Norðurlöndum er það á bilinu 23-31% samkvæmt nýrri alþjóðlegri rannsókn Global Media Monitoring Project (GMMP) sem kynnt er í dag.
 
Fjallað er um rannsóknina á fréttavef RÚV í dag, en þar segir að hlutur kvenna

 í íslenskum fréttum hafi rýrnað frá könnun sem gerð var fyrir fimm árum. Tæpur þriðjungur frétta í íslenskum fréttamiðlum er skrifaður eða fluttur af konum og íslenskar fréttakonur voru líklegri en starfsbræður þeirra til að tala við eða fjalla um konur.

 

 

Í fréttinni segir að konur séu viðmælendur eða umfjöllunarefni í 33% þeirra frétta sem konur skrifa í íslenska fréttamiðla en í 8% frétta sem skrifaðar eru af körlum samkvæmt rannsókninni. Af henni megi ekki ráða að fréttakonur hér á landi fjalli síður um hörð mál en fréttakarlar.

Helstu fréttamiðlar í 114 löndum voru vaktaðir 25. mars í ár og kannað hveru oft var talað við eða fjallað um konur, í hvers konar fréttum og í hvers konar hlutverkum, sem og hver var hlutur fréttakvenna og fréttakarla. Ísland tók fullan þátt í könnuninni sem gerð er á fimm ára fresti, en þetta er í annað sinn sem hún er gerð. 

Greindar voru fréttir RÚV í útvarpi og sjónvarpi, Morgunblaðinu og netmiðlum þeirra, Stöð2 Bylgkjunni, Fréttablaðinu, á dv.is, eyjunni/pressunn.is, og kjarnanum.is.

Hlutfall viðmælenda í þáttum Hringbrautar er jafnt milli kynja samkvæmt sérstöku kynjabókhaldi sem sjónvarpstöðin heldur úti og birtir mánaðarlega, en stefna hennar er að aldrei halli á annað kynið þegar kemur að gestum stöðvarinnar.