Ólafur Jón Sívertsen gerir smjörklípuaðferðina að umfjöllunarefni í nýjasta pistli sínum. Þar segir hann smjörklípuna hafa þann tilgang einan að beina athyglinni frá kjarna málsins og þannig burt frá aðalatriðinu. Hann segir konungaa smjörklípunnar núna vera þá Illuga Gunnarsson, menntamálaráðherra og Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.
Ólafur Jón er ekki að skafa af hlutunum frekar en endranær. Jafnframt því að tíunda smjörklípur ríkisstjórnarinnar á liðnum mánuðum segir hann:
„Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra er allur í skít vegna fjármálavafsturs síns.
Orka Illuga fer í að bera af sér sakir um ORKA ENERGY og fær hann handlangara sína á Ríksútvarpinu til að kynna smjörklípuna, tilkomu Rásar 3.
Hinn konungur smjörklípunnar er Sigmundur Davíð Gunnlagsson forætisráðherra sem kynnti (a) að kanna ætti millilandaflug á Egilstöðum og á Akrueyri og (b) viðbyggingu við steinkumbaldan við Austurvöll og (c) byggingu nýrrar Valhallar á Þingvöllum og (d) að gefa ætti þjóðinni í afmælisgjöf árið 2018 hús undir stofnun Árna Magnússonar og (e) selja húsnæði Landsspítalans við Hringbraut með gróða undir hótelstarfsemi og (f) byggja síðan nýjan spítala á lóð RÚV við Efstaleiti."