Konu hrint fram af svölum í breiðholti

Lögreglu barst tilkynning um níu leitið í gærkveldi um að konu hefði verið hrint fram af svölum í Breiðholti. Konan var flutt alvarlega slösuð á sjúkrahús. Maðurinn sem henti henni af svölunum var handtekinn á staðnum og vistaður í fangageymslu lögreglunnar.

Að sögn lögreglunnar er málið í rannsókn og getur hún ekki tjáð sig frekar um málið að svo stöddu.