Konráð Guðjónsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, gagnrýnir Pírata harðlega í tengslum við boðaðar skattkerfisbreytingar flokksins. Hann segir tölurnar sem komi fram með séu algjört rugl.
„Píratar halda áfram að fara fram með algjört rugl um tekjuskatt. Halda að hækkun efsta þreps um 3,75 prósentur skili 34,8 makr. Miðað við tekjur Íslendinga 2020 skilar slík hækkun 4,1 makr. Hátt í 9-falt ofmat,“ segir Konráð á Twitter.
Nýverið svaraði Konráð Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingmanni flokksins, á Twitter sem varð til þess að hún fjarlægði tíst sinn um skattkerfið og baðst afsökunar. Má geta þess að Þórhildur Sunna hefur opinberað að hún hafi mestan áhuga á að verða fjármálaráðherra ef flokkurinn kemst í ríkisstjórn. Píratar hafa svo gefið út að þeir ætli að hækka skatta meira en upphaflega stóð til.
Konráð segir ekkert að marka útreikninga frá flokknum.
„Ef þetta væri rétt myndi það þýða að þessi hæstu tæplega 10% hefðu 928 makr. samtals í árstekjur og tækju meira en helming allra tekjuskattskyldra tekna landsmanna. Það er alrangt.“
Píratinn Smári McCarthy benti á að það yrðu einnig lækkaðir skattar:
„Þetta að lækka prósentur hér og þar, en á sama tíma eru mun fleiri skattahækkanir ─ 13 lækkanir, 18 hækkanir minnir mig, og að auki er persónuafslátturinn látinn rýrast með því að verðlagsbæta hann ekki,“ segir hann. „Að láta persónuafsláttinn rýrast þannig er de facto skattahækkun á alla launamenn, sem bitnar verst á tekjulágum. Og allar þessar hækkanir snúast fyrst og fremst um það mission Sjálfstæðisflokksins að sýnast pro lágir skattar en velta öllu út í gjöld og nefskatta í staðinn.“
Konráð spurði svo: „Hvernig stendur á þessu? Hver hefur kennt ykkur á tekjuskattkerfið? Hvar voruði þegar þessi stóra breyting fór í gegnum þingið?“
Smári svaraði: „Persónuafsláttur á ári:
2019: 677.358kr
2020: 655.538kr
2021: 609.509kr
Hann hefur ekki bara rýrnað að raunvirði heldur beinlínis lækkað undanfarin ár. Vandræðalega þvælan er ykkar.“