Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, telur líklegt að gistinóttin á nýja 5 stjörnu Marriott hótelinu sem rís nú í miðbæ Reykjavíkur sé ódýrari en gistinóttin í hjólhýsi. Hann veltir þessu upp á Twitter.
„Þegar allt kemur til alls, nýting og allur kostnaður, verður gistinóttin á nýja 5 stjörnu Marriott hótelinu ódýrari en að gista í 5 stiga hita og súld í hjólhýsi,“ segir hann í léttum dúr.
Hann tekur dæmi um lítið hjólhýsi sem kostar 6 milljónir króna. „Miðað við verðið þarnæstu helgi á Hótel Holt gætirðu gist þar í þrjá mánuði fyrir sömu fjárhæð. Þá á eftir núvirða, borga fyrir allt hitt sem fylgir hjólhýsinu og taka tillit til að morgunmatur er sjaldan innifalin á tjaldstæðum.“
Konráð viðurkennir að hjólhýsið verður ekki verðlaust eftir það.
„En kannski kemst punkturinn betur til skila með að þú gætir fengið mjög fína gistingu fyrir 6 mkr. í meira en 6 mánuði samfleytt ef því er að skipta. Það þarf að rannsaka þetta.“
Ásgeir nokkur segir erfitt að bera þetta saman. „Yfirleitt kaupir fólk hjólhýsi til að geta farið vítt og breitt. Það er því erfitt að bera það saman við hótel sem alltaf er fast á sama stað.“