Könnun: meirihlutinn í rvk heldur

Ný könnun Félagsvísindastofnunar sýnir meirihlutaflokkana í Reykjavík naumlega halda meirihluta sínum í borgarstjórn Reykjavíkur.

Samkvæmt könnuninni, sem gerð var fyrir Morgunblaðið mælast borgarstjórnarflokkarnir þrír, Samfylking, Píratar og Vinstri grænir með um 47% fylgi og 12 borgarfulltrúa af 23.

Samfylking er stærst með 30,7% og átta fulltrúa en Sjálfstæðisflokkurinn með 27,3% og sjö menn. Aðrir flokkar fá talsvert minna fylgi, VG, Miðflokkurinn og Píratar mundu öll fá tvo borgarfulltrúa.

VG mælist með um 9,7% fylgi, Miðflokkurinn 7,3% og Píratar 6,8%. Viðreisn og Flokkur fólksins fá einn fulltrúa. Viðreisn er með 5,3% fylgi og Flokkur fólksins 3,6%.

Ástæðan fyrir því að 47% fylgi nægir til að halda 14 manna meirihluta er mikil dreifing atkvæða á mörg framboð. Í heild falla 9,5% atkvæða dauð.

Einnig var spurt hvaða einstakling kjósendur vildu helst sjá gegna embætti borgarstjóra. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri var oftast nefndur en 45,4% þeirra sem svöruðu könnuninni vildu fá hann sem borgarstjóra. Eyþór Arnalds, borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins, var nefndur af 29,4% og 8,8% svarenda vildu Vigdísi Hauksdóttur, oddvita Miðflokksins, í embættið. 

Könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands var gerð dagana 23. til 25. apríl.