Niðurstöður könnunar meðal forsvarsmanna fyrirtækja sem eru innan Samtaka iðnaðarins (SI) sýnir að meirihluti forsvarsmannanna er á móti því að Ísland gangi í Evrópusambandið (ESB). SI létu gera um þetta netkönnun fyrir skemmstu. Segjast 37% aðspurðra vera mjög andvígir ESB aðild og 20% eru frekar andvígir. Ein 8% eru mjög hlyntir aðild en 17% frekar hlyntir og 16% hvorki né. Og 2% svörðu ekki.
Sé litið yfir lengri tíma fer andstaðan við ESB aðild því mjög vaxandi innan SI og hefur líkast til aldrei verið meiri. Sé litið til annarra þátta vildu 59% aðspurðra að framhald aðildarviðræðan við ESB yrði lagt í dóm þjóðarinnar. Þetta er í samræmi við vilja Iðnþings árið 2016. \"Meirihlutinn vill ekki í ESB og þróunin hefur lengi verið í þá átt nema hvað menn vilja kjósa um hvort viðræðunum sé haldið áfram\" segir Almar Guðmundsson framkvæmdastjóri SI í samtali við Morgunblaðið.
Nánar www.si.is og www.mbl.is