Könnun á væntingum markaðsaðila

Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að verðbólguvæntingar markaðsaðila til eins árs hafa hækkað lítilega frá síðustu könnun. Í könnunni núna voru markaðsaðilar spurðir hverjir þeir telja að meginvextir Seðlabanka Íslands eigi að vera núna. 

Rúmur helmingur svarenda töldu þá eiga að vera á bilinu 4,7-5% eða jafnháa eða 0,25% lægri en þeir eru nú. Nokkuð færri svarendur töldu þá eiga að vera 4,5,%.

Seðlabanki Íslands byrjaði árið 2012 að gera ársfjórðungslega könnun á væntingum markaðsaðila til helstu hagstærða þar með talið til verðbólgu og vaxta. 

Þátttakendur eru nú eins og þá rekstrafélög og lífeyrissjóðir og einnig greiningardeildir banka og verðbréfamiðlanir og fleiri. 

Könnunin gagnast Seðlabankanum við framkvæmd peningastefnunnar og í rannsóknum.   

Nánar a www.sedlabanki.is