Kona fer í stríð á cannes

Ríkisstjórnin mun veita kvikmyndinni Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson styrk til að standa straum af kynningarkostnaði vegna þátttöku á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Þetta kemur fram í tilkynningu ráðuneytisins en ekki fylgja enn upplýsingar um upphæðina.

Kvikmyndin var nýlega valin til að keppa í flokknum Semaine de la Critique (Viku gagnrýnenda eða Critic’s Week) á hátíðinni.

Benedikt skrifar einnig handrit myndarinnar með Ólafi Egilssyni. Myndin verður frumsýnd hér á landi síðar í mánuðinum.

Myndin fjallar um konu sem Halldóra Geirharðsdóttir leikur. Hún er kórstjóri á fimmtugsaldri, ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdarverkamaður og er tilbúin til að fórna öllu fyrir móður jörð og hálendi Íslands þar til munaðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur inn í líf hennar. Að bjarga einu barni er að bjarga heiminum. En spurningin er bara hvort það nægi?

Aðeins sjö kvikmyndir og sjö stuttmyndir eru valdar til sýningar á Critic’s Week úr þúsundum innsendra mynda. Kona fer í stríð er áttunda kvikmyndin í fullri lengd eftir íslenskan leikstjóra sem valin er til sýninga á Cannes-hátíðinni og önnur íslenska kvikmyndin sem valin er í „Viku gagnrýnenda“. Um 40 þúsund gestir sækja hátíðina ár hvert en hún stendur dagana 8. - 19. maí n.k.

Fyrri kvikmynd Benedikts í fulltrí lengd er Hross í oss sem fékk fádæma góðar viðtökur víða erlendis.