Karlmaður á fertugsaldri er í haldi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu grunaður um að hafa átt þátt í falli konu af svölum íbúðar í fjölbýlishúsi í Breiðholti í gærkvöld. Konan, sem er á þrítugsaldri, er illa slösuð eftir fallið, en þó ekki í lífshættu. Lögreglan hefur ekki gefið upp hversu hátt fallið var.
Að sögn lögreglunnar er rannsókn málsins er skammt á veg komin og ákvörðun um gæsluvarðhald liggur ekki fyrir. Lögreglan segir að ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.