Allt málið endaði svo auðvitað á því að konan mín, sjálft fórnarlambið í málinu, var gerð að sókudólgnum, en gerandinn taldi sig standa með pálmann í höndunum þegar úttektin á því lá fyrir.
Á þennan veg mælir Einar Bárðarson, umboðsmaður og athafnamaður í persónulegu samtali við Sigmund Erni í Mannamáli vikunnar, en þar fer hann hispurslaust yfir Orkuveitumálið sem leiddi til þess í fyrstu að eiginkonu hans, Áslaugu Thelmu Einarsdóttur var sagt upp störfum af yfirmanni sínum sem svo neyddist sjálfur til að taka pokann sinn fyrir klámkjaft. Málið komst í hámæli í haust á nýliðnu ári - og allt í einu var Orkuveitan, sem átti að vera í úrvalsdeild jafnréttismála með allt niður um sig í þeim efnum.
Hann talar líka um lagasmíðarnar sínar en nú á nýju ári verða tvennir tónleikar haldnir á Selfossi og Hafnarfirði þar sem þjóðkunnir söngvarar kyrja sívinsæl lögin sem hann hefur látið frá sér síðastliðna tvo áratugi, allt frá því Ertu þá farin skaut rótum í lagagarði landsmanna. Og það er dásamlegt að hlusta á hann rifja upp umboðsmannasögurnar og tónleikarahaldaralífið, enda fer hér sagnamaður af bestu gerð.
Mannamál var frumsýnt í gærkvöld, endursýnt í dag og um helgina en er nú einnig aðgengilegt á hringbraut.is undir flipanum sjóvarp - ei s og allir aðrir þættir Hringbrautar frá upphafi.