Kona ólafs fanga klagar yfirvaldið

Ingibjörg Kristjánsdóttir, eiginkona Ólafs Ólafssonar sem nú afplánar margra ára dóm fyrir efnahagsbrot á Kvíabryggju,  segir Pál Winkel, forstjóra Fangelsismálastofnunar brjóta á réttindum fanga eins og eiginmanns hennar.

Þetta kemur fram í grein sem hún skrifar í Fréttablaðið í dag, en þar sakar hún einnig Pál um að tjá sig opinberlega um einkamál útrásarvíkinga sem sitja í fangelsinu að Kvíabryggju og fara með ósannindi um þá. 

\"Framganga Páls er sérlega ósmekkleg í ljósi þess að hann veit manna best að frelsissviptingin ein og sér er mönnum nógu erfið þó mannréttindi þeirra séu ekki brotin samhliða“ segir Ingibjörg í greininni og segir háttalag yfirmanns stofnunarinnar hafa verið á kostnað skjólstæðinga Páls, \"fanga sem eiga sér fáa málsvara í þjóðfélagi haturs og hefnigirni, fanga sem Páll veit að er óheimilt að tjá sig í fjölmiðlum. Fangarnir eru því varnarlausir gegn aðför forstjóra Fangelsismálastofnunar.“ 

Ingibjörg segir aukinheldur að Páll hafi \"ítrekað veist ómaklega að ákveðnum skjólstæðingum sínum í fangelsinu á Kvía­bryggju. Hann brýtur á þeim sem ekki geta varið sig og hefur orðið uppvís að því að fara með rangt mál. Einn þeirra sem Páll hefur brotið á er eiginmaður minn, Ólafur Ólafsson, sem afplánar þar dóm.“