Kona lést af slysförum eftir fall úr stiga á akranesi

Kona á fer­tugs­aldri lést af slys­förum síðasta fimmtu­dag þegar hún féll niður úr stiga á Akra­nesi. Hún er talin hafa lent á höfðinu.

Frá þessu greinir RÚV. Þar er haft eftir Jóni S. Óla­syni, yfir­lög­reglu­þjóni á Vestur­landi, að fall konunnar hafi verið um þrír metrar úr stiganum.

Að­spurður sagði hann þá að allt hafi bent til þess að hún hafi verið að búa sig undir ó­veðrið, sem var á föstu­dag, og ganga frá lausum munum, en að hann geti ekki full­yrt slíkt.