Kona í lífshættu eftir umferðarslys

Kona á þrítugsaldri slasaðist alvarlega í gærkvöld þegar tveir fólksbílar rákust saman á Hrútafjarðarhálsi.

Rúv greinir frá þessu og segir að konan hfi verið flutt með sjúkrabifreið að Staðarskála, þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hana og flutti á Landspítalann í Fossvogi.

Læknir sagði konuna í lífshættu í gærkvöld.

Klippa þurfti þakið af bíl konunnar til að ná henni út. Bílarnir köstuðust báðir út af veginum við áreksturinn, hvor sínu megin og voru um 100 metrar á milli þeirra. Nokkur hálka var á veginum eins og víða í dag og eru ökumenn beðnir að sýna fyllstu aðgát segir í frétt Rúv.