Kona gísla þórs minnist hans: „við ætluðum að kaupa hús með garði þar sem börnin gætu leikið sér“

„Gísli Þór var fallegastur af öllum að innan sem að utan. Ég elskaði hann af öllu mínu hjarta. Ég og börnin mín erum búin að missa hann úr lífi okkar af eilífu.“

Þannig hefst hjartnæmt bréf sem kona Gísla Þórs Þórarinssonar birti á samfélagsmiðlum. Gunnar Jóhann Gunnarsson hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í Noregi en hann er grunaður um að hafa myrt hálfbróður sinn, Gísla Þór, í bænum Mehamn í Noregi aðfaranótt laugardag. Þá hefur annar Íslendingur verið úrskurðaður í viku varðhald. Gunnar tjáði sig sjálfur á Facebook þar sem hann virtist viðurkenna glæpinn. Aðstandendur og vinir eru slegnir og hafa lýst Gísla sem góðhjörtuðum manni sem vildi öllum vel. Einn vina hans sagði:

Í losti sem stendur. Þvílíkt áfall. Sársaukinn er ólýsanlegur.“

Hver einasti maður í Mehamn er í sjokki. Við vorum góðir félagar. Þessi drengur var alveg yndislegur og ég get sagt þér að stórt skarð er höggvið í samfélag Íslendinga jafnt og Norðmanna.“ Þetta sagði Sigurður Hjaltested, sjómaður í Mehamn, í samtali við Mbl.is um helgina, um Gísla Þór.

Á laugardag var haldin minningarathöfn um Gísla Þór í bænum, auk þess sem kirkjan í þorpinu Gamvik, sem er í grennd við Mehamn, var höfð opin. Norskir fjölmiðlar höfðu eftir presti kirkjunnar í Gamvik að athöfnin hafi verið tilfinningaþrungin.

„Athöfnin var mjög falleg og þangað komu allir, Íslendingar og Norðmenn. Hann var aufúsugestur á hverju heimili hér,“ sagði Sigurður Hjaltested í samtali við Morgunblaðið.

Kona Gísla tjáir sig einnig um þennan sára og erfiða missi. Hún segir: „Hjartað mitt er í molum. Lífið var yndislegt og við létum ekkert og engan skemma hamingjuna fyrir okkur og svo hrynur allt á einu augnabliki.“

Þá segir hún einnig: „Við ætluðum að kaupa hús með garði þar sem börnin gætu leikið sér. Gísli keypti fótbolta, en hann náði aldrei að leika sér með honum.“

Segir hún að Gísla hafi alltaf fundist mikilvægt að henni og börunum liði vel og hann gert allt til að gæta þeirra. Þá þakkar hún vinum og vandamönnum fyrir stuðninginn síðustu daga.

„Hann var besti maður sem ég hef kynnst og við gátum ekki beðið eftir því að eyða restinni af ævinni saman. Lífið getur verið svo óréttlátt.“