Kona flutt á sjúkrahús eftir árás

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var nokkrum sinnum í nótt kölluð út vegna slagsmála.

Kona var flutt á sjúkrahús með áverka eftir að ráðist hafði verið á hana.

Þá var maður sleginn með áhaldi og er sár eftir.

Einnig urðu slys vegna hálku og var mikill erill bæði hjá lögreglu og sjúkraliði, 40 ferðir voru farnar í nótt til að sinna sjúkum og slösuðum.

Flughált er víða á götum nú og ekki síst sunnanlands. Eru ökumenn beðnir um að aka varlega.