Kona á Akureyri vildi ekki láta bólusetja sig og var sagt upp – Nú er komin niðurstaða í málið

Konu sem sagt var upp störfum hjá Mötuneyti Menntaskólans á Akureyri í nóvember 2021 vegna þess að hún afþakkaði bólusetningu gegn Covid-19 segist þakklát fyrir að málinu sé loks lokið.

Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Norðurlands eystra á fimmtudaginn síðastliðin og lauk málinu með dómsátt. Mötuneytið féllst á að greiða konunni miska- og skaðabætur vegna uppsagnarinnar.

Fréttablaðið greinir frá.

Konan fékk uppsagnarbréf fyrir yfirmanni sínum í lok nóvember 2021 en þar segir: „Ástæða uppsagnar er að ég tel of áhættusamt að hafa óbólusettan einstakling í vinnu á stað eins og mötuneytið er. Er ég þarf að hugsa um hag einstaklinga sem eru í okkar umsjá og einnig hag annarra starfsmanna.“

Konan og eiginmaður hennar segja í samtali við Fréttablaðið að eftir að framkvæmdastjóranum hafi verið ljóst að hún hafi verið óbólusett hafi hann lagt hana í einelti. Í bréfi sem sent var til stjórnarformanns félagsins 22. nóvember 2021 er óskað eftir aðgerðum vegna endurtekins eineltis. Af því hafi þó ekki orðið.

Þann 29. nóvember barst konunni svo uppsagnarbréfið þar sem ástæðan var sögð vera vegna þess að hún hefði ekki þegið bólusetningu. Lögmaður konunnar mótmælti uppsögninni með bréfi í desember sama ár og svaraði lögmaður mötuneytisins að ef konan væri reiðubúin að fara í PCR próf tvisvar í viku og skila inn neikvæðum niðurstöðum þá væri mötuneytið tilbúið að afturkalla uppsögnina. Lögmaður konunnar benti á að slík beiðni ætti sér ekki stoð í lögum né í kjarasamningum og því var ekki fallist á þessa afarkosti.

Í greinargerð lögmanns mötuneytisins kemur fram að uppsögn konunnar hafi verið byggð á lögmætum sjónarmiðum. „Það að stefnandi sé almennt andvíg bólusetningum hefur ekkert með starfslok hennar að gera, ólíkt því sem hún heldur sjálf fram, heldur það að sú ákvörðun hennar að neita að undirgangast regluleg próf til að ganga úr skugga um að hún væri ekki smituð af Covid-19 gerði stefnda einfaldlega ótækt að þiggja vinnuframlag frá stefnanda, samkvæmt ráðleggingum frá svæðisstjóra almannavarna á Norðurlandi.“

Nánar má lesa um málið á vef Fréttablaðsis.