Komugjöld heilsugæslu tekin af hjá öryrkjum og öldruðum

Hætt verður að innheimta komugjöld af öryrkjum og öldruðum í heilsugæslu og hjá heimilislæknum frá 1. janúar næstkomandi, samkvæmt ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. Gildir það jafnt hvort sem um er að ræða komu á dagvinnutíma eða á öðrum tímum sólarhringsins. Gjald fyrir vitjanir lækna til aldraðra og öryrkja verður einnig fellt niður. Líkt og áður eru ekki innheimt komugjöld hjá börnum að 18 ára aldri.

 Komugjöld almennra notenda í heilsugæslunni verða óbreytt að krónutölu á nýju ári og taka því ekki hækkunum í samræmi við breyttar verðlagsforsendur.

Komur öryrkja í heilsugæsluna eru um 55.000 á ársgrundvelli og komur aldraðra um 107.500, miðað við tólf mánaða tímabil frá miðju ári 2017 – 2018.

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins og lesa má meira um hér.