Jón Gunnarsson ráðherra samgöngumála segir að hugmyndir um stórframkvæmdir í vegagerð verði kynntar á næstunni.
Starfshópur ráðherrans mun skila tillögum um hvernig megi ráðast í stórframkvæmdir í samgöngumálum út frá Reykjavík.
Helst skal skoða hvernig greiða megi leiðir út frá borginni og þá helst til suðurs og austurs. Einnig í vestur. Gefa skal ráð um hvernig fjármagna megi stórar framkvæmdir eins og þær sem Jón Gunnarsson hefur í huga.
Aðkoma einkaaðila með lánsfé kemur til greina fremur en að fé komi úr ríkisjóði.
Jón Gunnarsson í ráðherra greinir frá áformum sínum í aðsendri grein í Viðskiptablaðinu í dag.
rtá
Nánar www.vb.is