„Jæja flugeldar: ég skil fólk sem vill kveðja árið og fagna nýju með látum og hvini. En þarf hvert og eitt heimili að vera með heila flugeldasýningu? Er ekki nóg að skjóta upp einni eða tveimur rakettum?“
Að þessu spyr Guðmundur Andri Thorsson þingmaður Samfylkingarinnar á Facebook. Þar tekur hann í svipaðan streng og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir sem ætlar að flýja höfuðborgina ásamt börnum, barnabörnum og hundi af ótta við mengun vegna flugelda á gamlárskvöld. Guðmundur Andri finnur einnig til með dýrunum. Þingmaðurinn spyr:
„Er þetta kannski angi af gamalli karlamenningu sem kominn er tími til að afleggja: að keppa við nágrannann um það hvor getur fýrað upp fleiri hundrað þúsund köllum, sýning á sóun og klikkun þar til allir eru að kafna?“
Þá segir Guðmundur Andri að lokum:
„Kannski verður tilveran ögn dauflegri – en er ekki nokkurs um vert að ná að draga andann?“