Hér ætti að starfa minnihlutastjórn sem þyrfti að leita eftir samstöðu á Alþingi um mál sín. Þetta segir Katrín Jakobsdóttir alþingismaður og formaður Vintsirhreyfingarinnar græns framboðs sem orðuð hefur verið við framboð til embættis forseta Íslands.
Fordæmið er nýlegt: Norræna velferðarstjórnin var minnihlutastjórn á síðasta starfsári sínu eftir að skörð höfðu myndast í stuðningi við hana á Alþingi, eins og fram kom í máli Katrínar Í Ólöfunum á fimmtudagskvöld þar sem hún sat á rökstólunum með nöfnu sinni Júlíusdóttur, en þær voru báðar alþingismenn og ráðherrar í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.
Katrín Júliusdóttir nefndi möguleikann á þjóðstjórn eftir næstu kosningar, tími væri kominn til að mynda stjórn með breiðri þátttöku stjórnmálaflokka eins og hefði reynst vel í borgarstjórn Reykjavíkur.
Þáttinn má sjá hér á vef stöðvarinnar.