Kominn með nægan fjölda meðmælenda

Vörubílstjórinn Sturla Jónsson hefur lokið hringferð sinni um landið þar sem hann safnaði meðmælendum með forsetaframboði sínu. Hann er nú kominn með rúmlega 3000 undirskriftir og er því orðinn gjaldgengur í kosningabaráttuna.

Sturla lýsti af þessu tilefni formlega yfir framboði sínu til embættis forseta Íslands í símatímanum á Útvarpi Sögu í morgun. Þar sagði hann að sér hefði verið tekið ákaflega vel á hringferð sinni og nái hann kjöri muni hann hafa stjórnarskrána í hávegum og standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar.

Annar hugsanlegur frambjóðandi, Ástþór Magnússon, hefur enn ekki verið jafn fengsæll og Sturla en Hringbraut.is hefur undanfarið greint frá hremmingum Ástþórs við undirskriftasöfnunina.