„Við höfum spurt. Við erum komin með svar sem er kannski ekki alveg fullkomið[...] en sem er hægt að draga þónokkrar ályktanir af. Það verður í þessari skýrslu. Hún er meira og minna bara á borðinu. Það þarf að klára örfá atriði. Það stendur á þessum karli sem hér er.“
Þetta segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri aðspurður um hvort Seðlabanki Íslands hafi spurt Kaupþing um hvað hafi orðið um 500 milljón evra neyðarlánið sem bankinn fékk hjá Seðlabankanum þann 6. október árið 2008, sama dag og neyðarlög voru sett á Íslandi. Kjarninn greinir frá.
Már er gestur Þórðar Snæs Júlíussonar, ritstjóra Kjarnans, í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Þar ræðir hann meðal annars afnám hafta, aflandskrónueigendur, hið umdeilda gjaldeyriseftirlit Seðlabanka, stöðu efnahagsmála og kjaradeilur.
Brot úr viðtalinu:
Seðlabankinn hefur árum saman unnið að skýrslu um tildrög þess að Kaupþing fékk 500 milljóna evra neyðarlán þann 6. október 2008. Upphaflega var skýrslugerðin boðuð í febrúar 2015 en nú, fjórum árum síðar, hefur hún enn ekki verið birt. Skýrslan var síðar útvíkkuð til að ná einnig yfir söluferlið á danska bankanum FIH, sem var tekinn að veði fyrir lánveitingunni. Mun minna fékkst fyrir það veð en lagt var upp með og áætlað er að tap íslenskra skattgreiðenda vegna neyðarlánsins hafi numið 35 milljörðum króna.
Már segir að skýrslan verði kláruð í nánustu framtíð. „Þetta liggur eins og mara á mér að klára þetta. Og ég vil bara klára þetta sem fyrst.“ Már mun láta af störfum sem seðlabankastjóri í sumar.
Nánar er rætt við Má í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.