Komið nóg af skrifum - eða blaðinu!

"Einhvern daginn kemur að því að manni þyki nóg komið af þessum skrifum - eða blaðinu - en það er óneitanlega skemmtilegra að enda svo langa og ánægjulega samfylgd með öðrum hætti en þessum," skrifar Guðmundu Andri Thorsson rithöfundur og fastur penni Fréttablaðsins í grein sinni á leiðarasíðu blaðsins í dag.


Greinin er nokkurs konar svar við varnarskrifum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar fyrir réttri viku sem einmitt viku burtu grein Guðmundar Andra á leiðarasíðunni, Guðmundi til nokkurrar undrunar og unnendum skrifa hans einnig. Þar kvartaði Jón Ásgeir sáran að vera enn í sigti sérstaks saksóknara. Í grein sinni í dag segist Guðmundur hafa fengið skýringu á því af hverju grein hans var hent út fyrir viku, en vissulega hafi hann orðið hvumsa á að sjá grein varnarræðu útrásarvíkings en ekki eigin skrif á síðunni.


Og Guðmundur leggur svo út af vegferð útrásarvíkinganna í grein sinni og segir takmörk vera fyrir því hvað helstu gerendur í aðdraganda bankahrunsins geti varið hendur sínar lengi á meðan þeir biðjist ekki svo lítils sem fyrirgefningar á gerðum sínum. Forherðingin haldi áfram. "Hrunmálin eru ekki einskær lagaleg álitamál heldur snúast þau líka um dyggðir og lesti og lærdóma sem einstaklingar og samfélag þurfaað draga af því sem hér gekk upp úr aldamótum þegar innleiddur var hömlulaus óða-kapítalismi. Og þegar við búum til óða-kapítalisma fáum við óða kapítalista," skrifar Guðmundur Andri.


Vart þarf mikið vit til að átta sig á hvert hann beinir þessum orðum sínum.


Og alls óvíst er sumsé hvort greinar hans verði fleiri í Frétablaðinu.