Ragnheiður Elín Árnadóttir ráðherra var gestur Þjóðbrautar í morgun. Þegar talið barst að hugsanlegum mótframboðum gegn henni í forystusæti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, sagði hún best að velja milli fólks með kosningu um sætið. Hún sagðist óhrædd. „Komi þeir sem koma vilja.“
Ragnheiður Elín sagðist hafa leitt flokkinn í tveimur kosningum og vera óhrædd komi til kosningana um sætið.
Suðurkjördæmi er eitt sterkasta vígi Sjálfstæðisflokksins, sagði hún. „Það er ekkert athugavert að fólki bjóði sig fram,“ sagði hún þegar spurt var hvort hún lýti á önnur framboð sem gagnrýni eða áfelli yfir hennar verkum.
Fari svo að hún tapi, hvað þá? Hún sagði það fara eftir úrslitunum. Falli hún illa, þá fylgi því skýr skilaboð.