MS mun frá og með 1. október n.k. bjóða öðrum sem framleiða úr mjólk allt að 300.000 lítra af mjólk á sama verði og Mjólkursamsalan greiðir bændum, tæpar 85 kr. fyrir hvern lítra. Þetta kemur fram á vefsíðu MS í nýrri tilkynningu.
Yfirburðastaða MS á markaði og samkeppnisbrot hafa verið áberandi í fréttum undanfarið. Ari Edwald, forstjóri MS, er samkvæmt heimildum Hringbrautar arkitektinn að stefnubreytingu mjólkurrisans.
„Nú hefur Mjólkursamsalan (MS) ákveðið að fara í aðgerðir til að koma til móts við þessi sjónarmið og er það einlæg von MS að það muni leiða til þess að framleiðsla á mjólkurvörum verði enn fjölbreyttari og gróskumeiri en áður og að fleiri spennandi vörur muni líta dagsins ljós á þessum markaði,“ segir í tilkynningu MS.
Aðgerðir MS munu miða að því að styrkja smærri framleiðendur og gera nýjum aðilum auðveldara með að hefja rekstur, byrja framleiðslu og ná að vaxa og dafna á markaði. Verðlækkunin sem fyrr er getið nemur 11% frá almennu verði á ógerilsneyddri hrámjólk og felur einnig í sér að MS mun veita öðrum framleiðendum endurgjaldslausan aðgang að því kerfi sem fyrirtækið rekur til þess að safna, gæðaprófa og miðla óunninni mjólk.
MS segir lækkunina mikilvægt sanngirnismál og að MS sé að mæta samfélagslegri skyldu með hliðsjón af markaðsstöðu og stærðarhagkvæmni. Einnig sé þessi ákvörðun tekin með hagsmuni eigenda Mjólkursamsölunnar í huga, um 650 kúabænda um allt land.