SOS barnaþorpin eiga 70 ára afmæli í ár og sömuleiðis 30 ára afmæli á Íslandi. Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS barnaþorpanna á Íslandi, og Þurý Bára Birgisdóttir styrktarforeldri voru gestir Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í gærkvöld. Ragnar ræddi þar um sögu og starfsemi barnaþorpanna og Þurý Bára um reynslu sína af því að vera styrktarforeldri.
Þurý Bára gerðist styrktarforeldri indversks drengs fyrir fimm árum. Hún fékk reglulega myndir og fréttir af honum en fékk loks að hitta hann síðasta haust, þegar hún gerði sér ferð til Indlands ásamt frænku sinni. „Við mætum þarna og fyrst fáum við að sjá heimili hans [SOS þorpið hans], þar sem hann var alinn upp, og það var mjög skemmtilegt og huggulegt. Hreint og fallegt og skemmtilegir krakkar. Svo fórum við og hittum hann. Þá fréttum við það að hann er kominn í verkfræðinám.“
Þurý Bára og frænka hennar þurftu að ferðast innan Indlands í langan tíma til að hitta drenginn, sem er í dag 18 ára, og þurfti hann sjálfur að ferðast í um sólarhring til að hitta þær, þar sem nám hans fer fram langt frá þorpinu sem hann ólst upp í. Honum gengur vel í náminu eftir því sem hún kemst næst. „Hann er mjög kátur með þetta allt saman og spenntur fyrir náminu.“
Aðspurð um hvernig hafi verið að hitta drenginn segir Þurý Bára: „Það var mjög skrítin tilfinning. Ég vissi ekkert á hverju ég átti von. Það sem kom mér mest á óvart hvað hann var rosalega þakklátur. Alveg ofsalega þakklátur fyrir stuðninginn. Hann spurði mig: „Ætlarðu að halda áfram að styðja mig?“ Ég sagði: „Svo lengi sem þú þarft. Það voru með honum menn sem eru hans forráðamenn og maður fann hvað það var vel haldið utan um hann. Passað vel upp á hann.“
Viðtal Lindu Blöndal við Þurý Báru og Ragnar í heild sinni má finna hér: