Líklega hefur engin kona náð eins miklum frama á jafn stuttum tíma innan Sjálfstæðisflokksins og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sem er gestur Sigmundar Ernis í Mannamáli þessa vikuna, en hún varð ráðherra um leið og hún settist á þing vorið 2016 og var svo nýverið kjörin varaformaður flokksins.
Og hún er rétt um þrítugt, kröftug bæði í tali og málefnaleg, en lýsir því vel í viðtalinu hvers lags hvellur það var í lífi hennar að koma svo hratt inn í pólitíkina og raun bar vitni, sem hún hafi raunar ekkert endilega ætlað að reyna á eigin skinni; allir vinir hennar og félagar hafi hins vegar verið búnir að segja henni fyrir lifandi löngu að hún ætti eftir að enda sem stjórnmálamaður.
Og innkoma hennar í landsmálin var ekki sársaukalaus. Nýfædd telpan hennar lá alvarlega veik uppi á Landspítala í miðjum stjórnarmyndunarviðræðunum í aðdraganda þess að hún varð einn yngsti ráðherra í sögu landsmannai - og um tíma leist nýbakaðri móðurinni hreint ekki á blikuna, svo mjög sem dró af barninu hennar um tíma.
Hún ræðir æskuna á Akranesi, Reykfjarðarnafnið sem kemur úr Djúpinu, ættina sína, en önnur amma hennar er Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, fyrrverandi þingkona og systir Guðjóns Arnars Kristjánssonar sem einnig sat á þingi um árabil, en féll nýlega frá. Og hún talar um hlutskipti kvenna í pólitík, skoðanir sínar og stefnu, svo og Sjálfstæðisflokkinn sem hún telur vera á góðum stað í þjóðmálaumræðunni í dag.
Mannamál er frumsýnt öll fimmtudagskvöld og endursýnt í dag og um helgina, en er einnig aðgengilegt á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.