Kolkrabbinn rumskaði en sofnaði aftur

Snemma árs 2008 tók ég við ritstjórn Mannlífs, sem var þá fréttatímarit. Eitt fyrsta viðtalið sem ég tók fyrir blaðið var við Bjarna Benediktsson, sem þá var alþingismaður sem og stór þátttakandi í viðskiptalífinu, með misgóðum árangri eins og nú ervitað,en ekki þá.

Í lok greinarinnar er spáð fyrir um stöðu einstakra fjárfesta snemma árs 2007 og hver framtíð þeirra gæti orðið. Eitthvað rættist og annað alls ekki.

Þá er það viðtalið, eða réttara sagt umfjöllunin, þar sem fjallað er um fleira en Bjarna Benediktsson.

-sme

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á ÞESSUM

Breytt staða fjárfesta er afleiðing af djúpri dýfu á fjármálamarkaði, hér og erlendis. Margir þeirra sem hafa verið hvað mest áberandi á undangengnum árum og baðað sig í velgengni róa nú lífróður. Ekki munu allir ná til lands og frétta af uppgjöf og gjaldþrotum er að vænta.

Meðan einstaka fjárfestar eiga í verulegum vanda eru aðrir sem hafa fjárfest með öðrum hætti. Þeirra á meðal eru Engeyingar, en þar fara fremstir bræðurnir Benedikt og Einar Sveinssynir og Bjarni, alþingismaður og sonur Benedikts. Karl Wernersson hefur einnig styrkst verulega að undanförnu og er jafnvel sá Íslendingur sem hefur hvað mestu getuna til fjárfestinga.

\"\"Engeyingarnir keyptu N1 með lánum frá bankanum þeirra.

Engeyingarnir, sem voru hluti Kolkrabbans, eru sagðir varfærnir, íhaldssamir í fjárfestingum og það skili sér núna. „Ég vil ekki andmæla því og er sáttur við að við séum metnir þannig. Það er samt ekki langt síðan við vorum í talsverðri áhættu. Eign okkar í Glitni var t.d. að hluta skuldsett. Kaupin á Olíufélaginu voru líka skuldsett en ég er mjög rólegur yfir því,“ segir Bjarni Benediktsson.

Þeir sem hafa farið hraðar eru margir hverjir í verulegum vanda, enda er lækkun á verðgildi fyrirtækja í Kauphöllinni að nálgast 500 milljarða bara frá áramótum. Þeir fjárfestar sem hafa skuldsett sig mikið við kaup á hlutabréfum horfa fram á verulegan vanda. „Nei, ég vil ekkert ræða þetta,“ sagði Kristinn Björnsson, en hann er meðal þeirra sem er sagður í hvað mestum vanda um þessar mundir og þó Kristinn vilji ekki tala, er allt sem bendir til þess að hann dragi verulega saman í fjárfestingum og verði seint eða aldrei eins fyrirferðamikill og hann hefur verið.

Kolkrabbinn upprisinn/ Það eiga þeir sameiginlegt Kristinn Björnsson og Bjarni Benediktsson að eiga rætur að rekja til Kolkrabbans, sem var mesta viðskiptaveldi hér á landi í langan tíma. Þó að Kolkrabbinn hafi aldrei verið til sem slíkur lágu þræðir hans víða. Ekki er langt síðan Kolkrabbinn var sagður dauður og hann kæmi ekki aftur. Bjarni Benediktsson brosir þegar þetta er rifjað upp.

Sem fyrr segir er staða Kristins Björnssonar slæm. Hann hefur farið með fjárfestingar fyrir ættmenni sín og sökum þess hvernig komið er blandast saman í hans vanda fjárhagslegt tap og tilfinningalegt. Öðru máli gegnir um Engeyingana.

Er rétt að þið séuð meðal þeirra sem sterkastir eru og líklegastir til að láta að ykkur kveða á næstunni?

„Ég á erfitt með að bera okkur saman við aðra en ég er ánægður með það hvernig til hefur tekist síðasta árið. Þessi órói á mörkuðunum er síðan alvarlegt mál fyrir alla. Þetta hittir okkur ekki illa því við erum vel fjármagnaðir til langs tíma en á endanum tapa hins vegar allir á svona ástandi,“ segir Bjarni Benediktsson.

Ykkar staða er sögð sterk og að þið hafið minnkað mestu áhættuna á réttum tíma.

„Það getur verið erfitt að meta virði óskráðra félaga þegar órói er á mörkuðum og því kannski erfitt að segja nákvæmlega um okkar stöðu. En við erum sáttir við það sem við höfum gert. Það á bæði við um kaupin á Olíufélaginu og á hlutnum í Icleandair. Bæði eru þau í traustum rekstri og hafa skilað ágætri afkomu síðustu ár. Icelandair er vissulega í áhættusömum rekstri en það hefur gengið ágætlega að stýra þeirra áhættu. Þetta er vel rekið félagið með mikla möguleika. Þegar við vorum að velta kaupum á Olíufélaginu fyrir okkur vorum við vissir um að með samruna Bílanausts við Olíufélagið væru miklir möguleikar til að samþætta þjónustu við bíleigendur. Þegar til kastanna kom sýnist mér að við höfum vanmetið þau tækifæri sem lágu í hugmyndinni. N1 hefur gengið framar vonum,“ segir Bjarni.