Inga Sæland kynnti efstu tíu manns á framboðslista Flokks fólksins í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningar í Norræna húsinu í gær undir kjörorðunum „fólkið fyrst.“
Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur leiðir listann. Hún segir áherslumál flokksins vera stöðu hinna verst settu og húsnæði fyrir alla sé forgangsmál ásamt tiltekt í rekstri borgarinnar.
Í næstu sæti raðast svona:
Karl Berndsen, hárgreiðslumeistari
Ásgerður Jóna Flosadóttir, viðskiptafræðingur og formaður Fjölskylduhjálpar Íslands
Þór Elís Pálsson, kvikmyndaleikstjóri
Halldóra Gestsdóttir, hönnuður
Rúnar Sigurjónsson, vélvirki
Hjördís Björg Kristinsdóttir, sjúkraliði,
Þráinn Óskarsson, framhaldsskólakennari
Friðrik Ólafsson, verkfræðingur
Birgir Jóhann Birgisson, tónlistarmaður
Helstu áherslur Flokks fólksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar seegir í tilkynningu eru fæði, klæði og húsnæði fyrir alla ásamt samvinnu við ríki og lífeyrissjóði til að koma á fót öflugu félagslegu húsnæðiskerfi fyrir efnaminna fólk. Ráðning „hagsmunafulltrúa aldraðra“ til að byggja öflugt, heildstætt kerfi til að halda utan um aðhlynningu og aðbúnað aldraðra. Skilyrðislaust verði byggt á sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og aðgengi fyrir alla. Foreldrar geti verið lengur í fæðingarorlofi og greiða skuli foreldri það sama og greitt er með barni vegna vistunar hjá dagforeldrum. Gjaldfrjálsar skólamáltíðir fyrir öll börn og skóli með aðgreiningu.
Nánar á vefsíðu Flokks fólksins hér
.