„Hugmynd um að varðveita gamla sjoppu við Langholtsveg er með ólíkindum ekki nema einhver auðkýfingurinn vildi fjármagna það og gefa borginni. Ég ætla rétt að vona að borgarmeirihlutinn fari ekki að taka upp á þeirri vitleysu að setja 50 milljónir í að endurbyggja ónýtt biðskýli.“
Þetta segir Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, um Sunnutorg. Sjoppan Sunnutorg við Langholtsveg var byggð árið 1959 og er mikið skemmd. Gerður var leigusamningur við fyrirtækið Los Pollos, en margir lesendur kannast við það nafn úr bandarísku sjónvarpsþáttunum Breaking Bad. Samningurinn við fyrirtækið var þannig að Los Pollos stæði undir öllum kostnaði vegna viðgerðar á húsinu sjálfu og borgaði svo leigu til Reykjavíkurborgar.
Fyrir stuttu kom í ljós að húsið er nánast ónýtt og er kostnaðurinn talinn vera 50 milljónir að gera upp bygginguna og hefur borgarráð ákveðið að semja um lok leigusamningsins við leigutakann. Engin formleg ákvörðun hefur verið tekin innan Reykjavíkurborgar að gera upp húsið. Kolbrún segir að það komi ekki á óvart ef borgin teldi húsið merkilegt og væri tilbúið að eyða tugum milljónum í að varðveita það.
„Í ljósi sögunnar kæmi það ekki endilega á óvart að skipulagsyfirvöld í borginni teldu að þetta væri merkilegt til varðveislu og verðugt verkefni að setja í nokkra tugi milljóna. Nota má 50 milljónir til margra annarra hluta en að endurbyggja þetta hús ef hús skyldi kalla jafnvel þótt það sé hannað af einhverjum frægum arkitekt.“