Kolbrún er látin: „dolla var hugulsöm, glaðvær, hreinskilin, en nærgætin“

\"\"Kol­brún Jóns­dótt­ir fædd­ist 26. des­em­ber 1956 í Reykja­vík. Hún lést á líkn­ar­deild Land­spít­al­ans 22. janú­ar 2020. Kol­brún gift­ist 14. júní 1997 Har­aldi Gunn­ars­syni, jarðfræðingi og fram­halds­skóla­kenn­ara. Hún eignaðist eina dótt­ur, Steinþóru Jóns­dótt­ur f. 10. októ­ber 1986 og gekk Har­ald­ur henni í föðurstað.

Kol­brún starfaði sem leik­skóla­kenn­ari hjá Reykja­vík­ur­borg 1977- 1983. Hún var fram­kvæmda­stjóri Körfuknatt­leiks­sam­bands Íslands 1983-1985.

Hún vann ýmis störf inn­an körfuknatt­leiks­hreyf­ing­ar­inn­ar 1978-1998. Kol­brún varð tvisvar Íslands­meist­ari í körfu­bolta með ÍS, 1978 og 1984, og fjór­um sinn­um bikar­meist­ari, 1978, 1980, 1981 og 1985.  Ásamt því að hún þjálfaði lið Hauka sem varð bikar­meist­ari 1984.

Kolbrún var fyrsti kvenþjálf­ari meist­ara­flokks á Íslandi. Hún þjálfaði kvenna­landslið Íslands 1986. Hún var í stjórn Körfuknattleikssambandsins ásamt því að vera fram­kvæmda­stjóri þess um tíma. Einnig sinnti Kol­brún far­ar­stjórn á mót á veg­um KKÍ og var lengi í landsliðsnefnd kvenna.

Hún var sæmd gull­merki körfuknattleikssambandsins 1996. Einnig var hún sæmd silfurmerki Íþrótta­sam­bands Íslands sama ár.

\"\"

Í kveðju á vef KKÍ er Kolbrúnar minnst. Þar segir:

Nú með fráfalli Dollu okkar hefur körfuboltinn misst eina af sínum öflugustu konum, við syrgjum góða vinkonu sem ávallt bar hag KKÍ og körfuboltans að leiðarljósi. Dolla hafði undanfarið átt við erfið veikindi að stríða og eins og hennar var von og vísa þá barðist hún alveg fram á síðasta dag með bjartsýni og jákvæðni að leiðarljósi, uppgjöf var ekki til hjá henni.

Dolla var körfuknattleikshreyfinginni afar mikilvæg, mikil KKÍ kona og mætti á alla þá viðburði sem hún gat. Afar gott var að leita í hennar reynslubanka og eiga við hana samtöl og þá yfirleitt hvernig við gætum eflt íþróttina okkar en frekar.

Dolla hefur gert nánast allt í kringum körfuna; var í stjórn KKÍ, framkvæmdastjóri KKÍ, sat í ýmsum nefndum sambandsins, þjálfari og leikmaður. Dolla tók að sér að verða landsliðsþjálfari kvennalandsliðsins þegar það kom saman aftur 1986 eftir 13 ára hlé en kvennalandsliðið kom fyrst saman 1973 og ekki aftur fyrr en þarna 1986 þegar hún tók að sér þjálfunina.

KKÍ syrgir nú öflugan liðsmann sem hefur svo sannarlega lagt sitt af mörkum fyrir körfuboltann á Íslandi og við þökkum fyrir að hafa fengið að njóta krafta, vinskapar og keppnisskaps Dollu.

Haraldi, Steinþóru og fjölskyldu sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur“

Hann­es S. Jóns­son, formaður,

\"\"

Í kveðju frá liðsfélögum segir:

„Í yfir fjóra ára­tugi höf­um við haldið hóp­inn, sem hóf­um æf­ing­ar í körfu­bolta með ÍS á ár­un­um 1973 til 1980. Dolla kom fyrst á æf­ing­ar haustið 1976, dökk yf­ir­lit­um, bein í baki og bros­andi. Hún var góður liðsmaður með afar gott auga fyr­ir leikn­um. Lagði sig æv­in­lega alla fram, enda keppn­is­skapið mikið, kunni kerf­in og hvatti aðra til dáða. Við æfðum og keppt­um af mik­illi al­vöru í mörg ár, unn­um titla og tók­um þátt í mót­um er­lend­is.

Dolla okk­ar var ein­stak­lega vel gerð mann­eskja. Hún átti auðvelt með að setja sig í spor annarra, var hug­ul­söm, glaðvær, hrein­skil­in, en nær­gæt­in. Það var alltaf gott að leita til henn­ar og ræða mál­in. Hún gekk alla tíð í öll verk­efni, sama hvers eðlis þau voru, stór eða smá, eins og ekk­ert annað væri mik­il­væg­ara. Var óhrædd að tak­ast á við ný verk­efni, enda skipu­lögð, sam­visku­söm og ekki mikið fyr­ir að kvarta. Hún gaf sig alla og var trygg og trú í öllu sem hún gerði.

Á kveðjustundu er okk­ur efst í huga þakk­læti fyr­ir áratuga vináttu og all­ar gleðistund­irn­ar sem við átt­um sam­an og Dolla átti svo stór­an þátt í. Það er stórt skarð höggvið í hóp okk­ar og við erum ekki leng­ur full­skipað lið en minn­ing­in um Dollu okk­ar mun lifa með okk­ur. Um leið og við þökk­um henni sam­fylgd­ina send­um við fjöl­skyldu henn­ar og vin­um inni­leg­ar samúðarkveðjur.

Hvíldu í friði elsku Dolla – þú varst ein­stök vin­kona.

Heldridömur ÍS,

Hanna, Kol­brún, Ragn­hild­ur, Kristjana, Krist­ín, Þór­dís, Guðríður, Guðný, Þor­gerður, Harpa, Þór­unn.“

Kolbrún Jónsdóttir (Dolla) verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju í dag kl. 13:00.