Kolbrún skammar hildi – dagur í bítinu: „þetta er væntanlega misheppnaður brandari“

„Það er alkunna að ofstækisfull barátta skaðar málstað fremur en að vinna honum gagn. Þetta mættu dólgafemínistar, sem koma sér iðulega í hlutverk geltandi varðhunda, hafa í huga. Í herbúðum þeirra væri ráð að sýna meiri yfirvegun og skynsemi í stað þess að koma sér samstundis í árásarstellingar hagi einhver máli sínu ekki eins og þessum dólgafemínistum þóknast.“

Svo ritar Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu, í leiðara blaðsins í dag.

„Það er dapurlegt að fylgjast með öfgafemínistum, sem koma óorði á hinn femíniska málstað, steypa sér hlakkandi yfir bráð sína. Bráðin er nær undantekningarlaust karlmaður – það segir sig sjálft – oft miðaldra eða eldri en það og stimplaður sem karlfauskur sem skilur ekki samtímann og því skal honum ekki hlíft,“ heldur hún áfram.

Kolbrún nefnir Hildi Lilliendahl sérstaklega og segir hana eina af þeim dólgafemínistum sem standi vaktina af mikilli samviskusemi. „Orði einhver hlutina ekki nákvæmlega eins og henni líkar fær sá hinn sami yfirhalningu sem síðan er yfirfærð á hóp karlmanna sem eru afgreiddir eins og þeir séu fremur viðbjóðsleg fyrirbæri, sannir skaðvaldar í þessum heimi.“

„Það þótti því bera vel í veiði þegar fréttist af því að á sumarhátíð Alþingis í Kaupmannahöfn hefðu einungis verið karlmenn,“ skrifar hún. „Dólgafemínistarnir vita að karlmenn kunna að rotta sig saman og gera sér glögga grein fyrir því að þá er ekki von á góðu. Hildur stóð vaktina af stakri samviskusemi og greip feginshendi orð sem Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, lét falla í ræð[u] á sumarhátíðinni.

Kolbrún vísar þar til þess þegar Helgi sagði að málþóf ætti ekkert skylt við málfrelsi. „Það er nokkuð til í því hjá honum. Hann bætti svo við að nauðgun ætti ekkert skylt við kynfrelsi. Nokkuð sem erfitt er að vera ósammála. Ekkert í þessum orðum hans var þess eðlis að ástæða væri til að ærast yfir þeim. Hildi tókst það samt, enda þaulvön að æsa sig af litlu tilefni og líður yfirleitt einkar vel í því hlutverki. Hún sagði Helga hafa líkt nauðgun við málþóf. Einhverjir urðu svo vitanlega til að taka undir með henni og hella sér yfir Helga.“

Kolbrún segir Helga alls ekki hafa verið að líkja nauðgun við málþóf. „Hann var að bera saman tvo hluti, málþóf og málfrelsi annars vegar og nauðgun og kynfrelsi hins vegar. Það er því ansi langsótt að segja að hann hafi verið að halda því fram að nauðgun ætti skylt við málþóf. Hildi tókst þó rækilega að snúa út úr orðum hans við ærandi fagnaðarhróp stuðningsfólks síns.“

\"\"

„Nýjasta innlegg Hildar í feminíska baráttu er T[w]itter færsla þar sem hún birti myndir af níu fyrrverandi ráðherrum með orðunum: „Ríða, drepa, giftast?“ Allir eru ráðherrarnir karlmenn, komnir vel á aldur. Konum er þarna gefið val um hvað þær vilja gera við þá,“ bætir hún við.

Að lokum bendir Kolbrún á hversu öfugsnúið það er. „Enginn þarf að efast um að ef kar[l]maður hefði birt myndir af þekktum konum með þessari sömu yfirskrift hefði hann kallað yfir sig almenna fordæmingu og verið stimplaður sem kvenhatari af verstu sort. En þegar kona opinberar fyrirlitningu sína á karlkyninu vekur það ekki mikla athygli, sumum þykir gjörð hennar jafnvel sniðug.“

Dagur í Bítinu

Þá var Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þar var hann spurður hvaða skoðun hann hefði á því að Hildur, sem starfar sem verkefnastjóri hjá borginni talaði með þessum hætti opinberlega.

„Ég ætla ekki að fara tjá mig um einstakar Facebook-færslur starfsmanna Reykjavíkurborgar. Ég hef ekki lesið þær,“ svaraði Dagur.

Heimir Karlsson, annar stjórnandi þáttarins vildi tala hispurslaust og bað Dag að snúa þessum aðstæðum við: „Ef þetta hefði verið karlmaður sem hefði sett svona fram um kvenráðherra. Heldur þú að hann væri í starfi sínu í dag?“

Því vildi Dagur ekki svara. Dagur var þá spurður hvort honum þætti í lagi að setja hlutina svona fram.

„Þetta er væntanlega einhver misheppnaður brandari,“ svaraði Dagur. Heimir svaraði þá á móti: „Enn einn. Ekki fyrsti misheppnaði brandarinn hjá henni.“ Og um það vildi Dagur ekki heldur tjá sig. 

Hér fyrir neðan má hlusta á viðtalið. Umræður um Hildi byrja á mínútu 09:40.