Kolbeinn Marteinsson, framkvæmdastjóri Athygli, kveðst vera þakklátur yfir því að vera miðaldra karl en ekki ungur maður. Í Bakþönkum Fréttablaðsins í dag skrifar Kolbeinn:
„Suma daga fyllist ég djúpu þakklæti yfir að vera miðaldra karl en ekki ungur maður. Samtíminn er síbreytilegur og það verður seint sagt að lífið sé að verða einfaldara.“
Að sögn Kolbeins var það nánast óþekkt þegar hann var ungur að fólk móðgaðist fyrir hönd annarra sem hann segir hins vegar að hafi aukist mjög undanfarin ár.
„Algengt er að þegar einstaklingar sem auðveldlega móðgast fyrir hönd annarra móðgast, þá spretti fram mikil og sterk þörf til að láta aðra vita af ósvífninni. Um leið geta hinir sömu slegið tvær flugur í einu höggi með því að láta í ljós eigin mannkosti með því að benda á slæma hluti í hegðun annarra. Sumir hafa kallað slíka hegðun dyggðaskreytingu og telja sumir slíka skreytingu fullkomlega eðlilegt viðbragð við því að móðgast fyrir hönd annarra,“ skrifar Kolbeinn.
Hann bætir því við að hann hafi sjálfur móðgað fólk með skrifum sínum í Fréttablaðið.
„Eitt sinn fékk ég langan póst á Facebook um hversu særandi einn pistill sem ég skrifaði hefði verið. Mér brá við og þegar ég gekk á viðkomandi kom í ljós að hann hefði verið mjög særandi fyrir aðra en hann. Það hefði hann fengið staðfest þegar hann hafði þó séð þónokkra vini sína móðgast mjög eftir að hann deildi pistli mínum á samfélagsmiðlum með lýsingum um hversu móðgandi hann væri.“
Kolbeinn segist að lokum hafa beðið viðkomandi afsökunar.
„Þegar þarna var komið við sögu varð ég hugsi og taldi best að biðjast afsökunar. Þá svaraði sendandi mér pent og sagðist ekki getað tekið við afsökunarbeiðninni þar sem ég hefði sært aðra en hann,“ skrifar Kolbeinn.
Bakþanka Kolbeins má lesa í heild á vef Fréttablaðsins.