Kökukeppni hringbrautar og kötlu

Kökukeppni Hringbrautar og Kötlu er að fara hefjast, en sigurvegari í keppninni hreppir stórglæsilega hrærivél frá Kenwood að verðmæti 90 þúsund krónur og kvöldverð fyrir tvo á Hótel Grímsborgum, auk miða á desembertónleika Sætabrauðsdrengjanna og gjafakörfu frá Kötlu.

Það er því um að gera að taka til hendinni og deila með landsmönnum frábærri kökuuppskrift sem getur jafnframt fært viðkomandi þennan glæsilega vinning sem að ofan getur. Fyrirkomulagið er einfalt; þátttakendur koma kökuna sína á sjónvarpsstöðina Hringbraut fimmtudaginn 19. nóvember, milli klukkan 09:00 og 18:00, en stöðin er til húsa á jarðhæð Sundagarða 2. 

Dómarar keppninnar eru sjálfir Sætabrauðsdrengirnir, Gissur Páll Gissurarson, Bergþór Pálsson, Hlöðver Sigurðsson og Viðar Gunnarsson, en dómstóll götunnar gefur kökunum líka einkunn, en fólk fær að smakka kökurnar í Kringlunni föstudaginn 20. nóvember milli 16:00 og 19:00, þar sem Katla býður gestum og gangandi að mála sínar eigin kökur, auk þess að smakka á ilmandi smákökur. 

Úrslitin liggja svo fyrir í Fólki með Sirrý hér á Hringbraut miðvikudaginn 25.nóvember kl. 20:00. 

Verið með og sendið okkur kökur. Og uppskriftina má senda á [email protected]. 

Já, nú er bara að byrja að baka.