Kókaínneysla að aukast hratt á íslandi - þrír látnir það sem af er af árinu vegna ofneyslu á kókaíni

Rekja má tuttugu og sex dauðsföll á fyrstu sjó mánuðum þess árs til misnotkunar á lyfseðilsskyldum lyfjum og ólögmætum lyfjum. Af þeim sem létust á þessum tíma greindist kókaín í þremur hinna látnu. Í samtali við RÚV segir Svala Jóhannesdóttir verkefnisstýra heilbrigðisþjónustuverkefnisins Frú Ragnheiðar, að hún hafi orðið vör við gífurlega mikla aukningu á neyslu kókaíns á Íslandi. Sex af þeim sem létust á þessu tímabili vegna misnotkunar á lyfjum voru undir 25 ára.
 

Lagt hefur verið hald á yfir 200 kíló af fíkniefnum það sem er af þessu ári. Lögreglan og tollyfirvöld segja að hlutfall kókaíns af því sem lagt er hald á sé meira en áður og efnin séu mun sterkari en áður hefur þekkst. Þá hefur innlend framleiðsla á efnum á borð við amfetamín aukist. Merkin um aukna kókaínneyslu á Íslandi er ekki bara að sjá í tölum frá löggæslustofnunum landsins, heldur einnig er orðið vart við á Landsspítalanum.

Í viðtali við Spegilinn á RÚV segir Jón Magnús Kristjánsson, yfirlæknir bráðalækninga á Landspítalanum, segir neyslumynstrið hafa breyst þegar kemur að fíkniefnum. „Við sjáum minna af því núna en við sjáum hins meira af fólki sem er að koma inn af neyslu kókaíns einmitt. Það eru ákveðin einkenni sem eru af öllum örvandi lyfjum, bæði amfetamíni og kókaíni. Þetta er fjölbreyttur hópur. Sumir eru að prófa þetta í fyrsta sinn og líkar ekki. Er hrætt við áhrifin. Aðrir hafa notað þetta reglulega sér til skemmtunar,“ segir Jón Magnús.