Kogga: engu breytt hér í 30 ár!

Keramiklistakonan Kogga á 40 ára starfsafmæli um þessar mundir, en hún er búin að vera í 30 ár á sama stað í Kvosinni þar sem Íslendingar jafnt sem erlendir ferðamenn leggja leið sína í stríðum straumi.

Verkstæði Koggu er svo gott sem kennileiti í Kvosinni enda hefur það staðast heldur betur tímans tönn: \"Ég hef aldrei breytt neinu hérna í þau 30 ár sem ég er búin að vera með gallerýið mitt hér á Vesturgötu\" sagði Kogga í þættinum Lífsins list sem var á dagskrá Hringbrautar í gærkvöld.

\"Við þóttum nú eitthvað skrýtin þegar við byrjuðum og ákváðum að halda í gráan steinvegginn og riðgaðan járnvegg. En þetta hefur staðist tímans tönn og elst vel,\" segir Kogga sem enn nýtur þess að skapa list úr leir.

Hún hefur þróað aðferð við keramikgerð sem er einstök í heiminum eins og sjá má í þættinum sem hægt er að skoða inni á hringbraut.is í heild eða í klippum.