Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs hefur mælst mjög hár í Reykjavík í dag samkvæmt mælingum í mælistöðinni við Grensásveg. Klukkan 13:00 í dag var klukkutímagildi köfnunarefnisdíoxíðs við Grensásveg 95 míkrógrömm á rúmmetra. Köfnunarefnisdíoxíðmengun kemur frá útblæstri bifreiða og er mest á morgnanna og í eftirmiðdaginn þegar umferð er þung. Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru 75 míkrógrömm á rúmmetra.
Gert er ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og frosti í dag og umtalsverðar líkur á því að styrkur köfnunarefnisdíoxíðs fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk við Grensásveg. Gert er ráð fyrir svipuðu veðri næstu daga og því líkur á að þetta ástand verði viðvarandi.
Almenningur er hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins við þessar aðstæður, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðargatna. Köfnunarefnisdíoxíð veldur ertingu í lungum og öndurvegi. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til.