Klósettskálar hreinni en plastbakkarnir

Plastbakkarnir sem flugfarþegar þurfa að setja m.a. snyrtivörurnar sína í áður en farið er í flug eru hlaðnar bakteríum og klósettskálar hreinni í samanburðinum.

Turisti.is segir þetta frétt hér

Hvergi er sýklaflóran meiri í flugvélum en á sætisborðunum sem farþegar setja matinn sinn á og kom þetta fram fyrir nokkrum árum þegar hreinlæti í flugvélum var kannað. Turisti.is sagði frá því í þessari frétt hér  í nóvember 2015. Þar segir frá rannsókn sem gerð var á vegum bandarísku ferðasíðunnar Travelmath.com. Sýklafræðingur á vegum fyrirtækisins tók 26 sýni í fjórum flugvélum. Niðurstöðurnar þóttu sláandi og helstu ferðarit heims gerðu þeim skil. 

Í nýrri frétt turista er nú vitnað í finnska rannsókn sem leiddi í ljós að bakkarnir sem notaðir eru við vopnaleitina á flugvöllum eru mjög skítugir þegar litið er til fjölda skaðlegra baktería. Könnuð voru sýni af 90 stöðum á Vantaa flugstöðinni í Helsinki og fjögur loftsýni og niðurstöðurnar leiða í ljós að fyrrnefndir bakkar toppuðu listann yfir þá fleti þar sem bakteríurnar voru flestar, segir í fréttinni.

Hinir ýmsu snertifletir á salernum flugstöðvarinnar reyndust hreinni en plastboxin.

Ekki er vitað til þess að samsvarandi könnun hafi verið gerð á Leifsstöð.