Klögur ganga á víxl í löggunni

Fjórtán starfsmenn lögreglu höfuðborgarsvæðisins hafa átt fundi í innanríkisráðuneytinu vegna samskiptavanda innan embættisins. Fundirnir eru sex talsins, en á tveimur þeirra lýstu fundargestir yfir stuðningi við Sigríði Björk Guðjónsdóttur lögreglustjóra.
 

Þetta kemur fram í skriflegu svari innanríksráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu RÚV. Þar kemur einnig fram að einn starfsmaður embættisins hafi átt fund með ráðherra, en það var Aldís Hilmarsdóttir fyrrum yfirmaður fíkniefnedeildar lögreglunnar sem var nýverið færð til í starfi, aðrir fundir voru haldnir með starfsmönnum innanríkisráðuneytisins.

Í svari ráðuneytisins kemur jafnframt fram að fimmtán lögreglumenn til viðbótar hafi óskað eftir fundi með Ólöfu Nordal innanríkisráðherra.