Skafti Harðarson birti í gær yfirlýsingu um fyrirhugað framboð frjálshyggjumanna á Seltjarnarnesi.
Skafti hefur verið í forsvari fyrir harðlínumenn innan flokksins á Nesinu og því veldur framboð frjálshyggjumanna klofningi í Sjálfstæðisflokknum á Seltjarnarnesi.
Í yfirlýsingu Skafta kemur m. a. fram:
“Í morgun skilaði ég inn til kjörstjórnar á Seltjarnarnesi framboði F-lista, fyrir Seltjarnarnes. Það eru mikil vonbrigði að þurfa að grípa til þeirra ráða að bjóða fram lista ........”
Með framboði hægri arms flokksins á Nesinu klofnar Sjálfstæðisflokkurinn þar í fyrsta skipti. Það eru nokkur tíðindi.
Í kosningunum 2014 voru 290 atkvæði á bak við síðasta mann sem náði inn í bæjarstjórn en það var 4. maður D-lista. Það er því ljóst að Skafti og félagar þurfa að fá meira en 300 atkvæði til að koma manni í bæjarstjórn þann 26. maí.
Sjálfstæðismenn klofnir á nesinu
Fleiri fréttir
Nýjast