Samráðherrar Gunnars Braga Sveinssonar eru sagðir ósáttir við yfirlýsingar hans um stuðning við viðskiptaþvinganir gegn Rússum. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í morgun og vitnar Rúv til.
„Þar segir að bæði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, vilji fara sér hægt varðandi afstöðu Íslands til málsins.“
Gunnar Bragi sagði í viðtali við DV í vikunni að ekki kæmi til greina að endurskoða afstöðu Íslands gagnvart þessum viðskiptaþvingunum.
Evrópusambandið samþykkti á föstudag áframhaldandi viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi.
Á forsíðu Fréttablaðsins kemur fram að Íslendingar þurfi ekki að taka afstöðu til þess fyrr en janúar - þess vegna séu samráðherrar Gunnars Braga ósáttir við hve afdráttarlaus utanríkisráðherrann hefur verið.
Rússar settu viðskiptabann á vörur frá Íslandi um miðjan ágúst en afstaða Íslands hefur verið umdeild - til að mynda af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Þannig lýsti talsmaður hagsmunaaðila í sjávarútvegi þungum áhyggjum í fyrstu frétt Stöðvar 2 í gærkvöld og brýndi íslenska stjórnamálamenn til stefnubreytingar.
Um milljarða hagsmuni er að ræða – en hott gæti orðið Íslendingum dýrkeypt að kljúfa sig frá samstöðu þjóða sem eru okkar nánustu bandamenn.