\"Klofningur fer vaxandi í röðum pírata\", skrifar Jónas Kristjánsson, einn reyndasti ritstjóri landsins sem hefur fylgst gjörla með pólitískri stefnusmíð ´þessa nýjasta stjórnmálaafls landsmanna.
Í tveimur nýjustu pistlum sínum á jonas.is sér hann glitta í sprungurnar og minnir á að í stefnuskrá pírata segi um stjórnarskrána: \"Píratar vilja samþykkja frumvarp til stjórnskipunarlaga sem er SAMHLJÓÐA frumvarpi Stjórnlagaráðs í ÖLLUM efnisatriðum,“ og hér undirstrikar Jónas orðin samhljóða og öllum: \"Uppkast stjórnarskrárnefndar alþingis fjallar ekki um slíkt,\" bætir hann við og minnir á að píratar hafi nýlega ályktað, 21 gegn 18, að þessi afsláttur af stefnufestu hindri ekki aðild sinna manna að nefndarstörfum.
Jónas segir í dag að þetta háttalag pírata varpi skugga á samþykkta og alkunna stefnu þeirra um að halda fast við efnisatriði frumvarps stjórnlagaráðs: \"Nefnd alþingis hefur starfað í leyni í hálft þriðja ár. Án árangurs. Formaður nefndarinnar hefur samt jafnan fullyrt, að stutt væri að landi. Nefndarmaður pírata, Aðalheiður Ámundadóttir, gæti rimpað í klofning pírata. Gæti lýst andstöðu við núverandi uppkast nefndarinnar, kvartað yfir seinagangi í störfum hennar og óviðeigandi bjartsýni formannsins. Það mundi væntanleg rimpa í klofninginn í röðum pírata,\" skrifar ritstjórinn í dag, en af orðum hans má þó ráða að klofningurinn í röðum þeirra sé að verða æ augljósari eftir því sem birtunni vex nú ásmegin.