Björt framtíð mun ótrauð bjóða fram til þings í öllum kjördæmum, segir Óttarr Proppé formaður flokksins. MIðað við kannanir myndi flokkurinn missa alla sex þingmenn sína.Fylgið mælist 3,9 prósent. Óttarr segir það vera orðna klisju að segja flokksmenn skoðanalausa þar sem þeir vilji friðsamlegri umræðu í stjórnmálum og leggi áherslu á samvinnu en ekki flokkadrætti og átök. \"Við höfum komið að mörgum góðum verkum og haft frumkvæði að þeim sumum en það kannski bara sést ekki útávið\", segir Óttarr og að það sé ekki nein strategía tilbúin um hvernig auka eigi fylgið. Hann hafi fulla trúa á því að úr muni rætast. Almenningur kalli eftir breytingum, kerfislegum breytingum og sér hrylli við þegar hann sjái yfirlýsingar hjá formanni Sjálfstæðisflokksin segja að það sé stefna þeirra að verkja kerfið og viðhalda stöðugleika. \"Þarna er bara verið að segja að engu verði breytt og hvaða stöðugleika er verið að tala um?\", spyr Óttarr. Ennfremur að Panamaskjala uppljóstrunin sé fólki enn í fersku minni og það muni ekki sætta sig við að það verði ekki kosið í haust eins og sagt var þegar nýr forsætisráðherra tók við eftir mótmæli á Austurvelli. Óttarr segir að flokkar eins og Björt framtíð sé fulltrúi breytinga og betra stjórnkerfis og því muni fylgið skila sér.
Klisja að við séum skoðanalaus
Fleiri fréttir
Nýjast