Næsta fimmtudag, 17. september, fer fram Opnunarhátíð PCC Bakki Silicon hf á Húsavík. Klippt verður á borða og verða framkvæmdir þar með formlega opnaðar. Athöfnin er opin almenningi.
Fimmtudagurinn mun marka upphaf framkvæmda á kísilmálmverksmiðu. Fyrr um daginn verður dagskrá á Fosshotel Húsavík þar sem bæjarstjóri Norðurþings, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, erlendir hagsmunaaðilar og fleiri flytja ávörp.
Byggingarkostnaður kísilversins er talinn verða um 300 milljónir Bandaríkjadala eða nálægt fjörutíu milljörðum íslenskra króna. Áætlað er að allt að 400 manns starfi við uppbygginguna og að við fyrri áfanga versins muni skapast um 120 framtíðarstörf, auk afleiddra starfa. Áætlanir gera ráð fyrir að framleiðsla geti hafist í árslok 2017.