Klínikin: lokaþáttur í kvöld

Í lokaþætti af Klíníkinni fylgjumst við með Áslaugu Hlíf fara í efri augnlokaaðgerð hjá lýtalækninum Kára Knúts.

Aðgerðin sem er ein algengasta lýtaaðgerðin sem er framkvæmd hér á landi fer fram í staðdeyfingu.

Við fáum að sjá allt ferlið hér á Sjónvarpsstöðinni Hringbraut klukkan 20:00 í kvöld.