Klaustursmálið rætt á fundi þingflokksformanna

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Alþingis, mun funda með formönnum þingflokka í dag. Á meðal dagskrárliða verður Klaustursmálið og ráðstafanir vegna þess. Málið var rætt á fundi forsætisnefndar í gær, þar á meðal mögulegar laga- og reglubreytingar til þess að málið komist í farveg, og verður málið rætt áfram á fundi þingflokksformanna í dag. Mbl.is greinir frá.

„Viðfangs­efnið er að koma mál­inu í rétt­an far­veg svo það geti gengið sína leið. Þetta snýst um að málið geti gengið rétta boðleið til siðanefnd­ar. Það er lík­leg­asta leiðin og sú sem til stóð, en strandaði á van­hæfi for­sæt­is­nefnd­ar. Verk­efnið er að leysa úr þessu. Svo vilja menn lík­lega ræða þetta inn­an þing­flokk­anna, sem flest­ir funda á miðviku­dög­um, svo þetta verður í vinnslu í vik­unni,“ segir Steingrímur í samtali við Mbl.is.