Klámstjarnan höfðar mál gegn trump

Stormy Daniels, klámmyndaleikkonan sem segist hafa átt í ástarsambandi við Donald Trump Bandaríkjaforseta á árunum 2006 og 2007, hefur nú höfðað mál gegn forsetanum fyrir dómi í Los Angeles.

Hún segir að þagnarsamkomulagið sem lögmaður Trumps, Michael Cohen, hafi gert við sig sé dautt og ómerkt. Lögmaðurinn hefur viðurkennt hafa greitt Clifford 130 þúsund dali (rúmlega 13 millj. kr.) úr eigin vasa, skömmu fyrir forsetakosningarnar 2016.

Stormy Daniels, sem réttu nafni heitir Stephanie Clifford, ætlar að láta reyna á lögmæti samkomulagsins. Í kærunni segir að það hafi vantað undirskrift forsetans á skjalið, aðeins lögmaður Trums hafi undirritað það og samkomulagið sé því ógilt.